Verkfræðiráðgjöf á sviði mannvirkjagerðar

NNE verkfræðistofa veitir viðskiptavinum á Íslandi og erlendis verkfræðiráðgjöf, frá burðarþoli og lögnum til orkuramma og dagsljósaútreikninga.

Snið A–ABurðarvirkiLagnirLoftræsingVarmatapDagsljós
Samræming hönnunargagnaBurðarvirki, lagnir og loftræsing á sömu teikningu, svo kerfin passi saman áður en framkvæmdir hefjast.Nánar um fagsviðið →
Fjölbýlishús í uppsteypu með byggingarkrana

Lausnir sem eru einfaldar í framkvæmd

  1. Færir hönnuðir með áratugalanga reynslu

    Teymi okkar samanstendur af færum hönnuðum með áratugalanga reynslu af hönnun einfaldra sem og flókinna verkefna og leggja sig fram við að veita viðskiptavininum góða þjónustu.

  2. Hagkvæmari verkferlar

    Sérfræðingar okkar vinna náið með sínum viðskiptavinum og samstarfsaðilum við að stytta hönnunartíma, auka hagkvæmni verkefna með því að lágmarka efnisnotkun og finna lausnir sem eru einfaldar í framkvæmd.

  3. Hluti af hópi sérhæfðra fyrirtækja

    Starfsmenn okkar vinna náið með systurfyrirtækjum okkar við lausn ýmissa verkefna á sviði byggingarverkfræði bæði innanlands og erlendis, allt frá íbúðabyggingum, brúm, hótelum og skólum til flókinna iðnaðarbygginga og háhýsa.

Nánar um starfsfólk →

Hver getur aðstoðað?

Veldu svið og sjáðu hvaða sérfræðingar NNE sinna því.

Ertu með verkefni í huga?

Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og unnt er.